Strax annan daginn í þýsku-skíða skólanum vorum við farnar að skilja aðeins betur. Vorum með 4 hollenskum krökkum í tíma, 2 stelpur og 2 strákar. Fyrst héldum við að þau hötuðu okkur (útaf Icesave) en svo þegar við kynntumst þeim kom í ljós að þau héldu að við værum frá Eistlandi!! Þannig er mál með vexti að þegar við segjum Iceland, þá heyrir fólk Eistland.. En það var allt saman gott og blessað, eftir margar umræður um Icesave voru þau sammála okkur um að þetta sé algjört bull og ein skammaðist sín fyrir þjóðina sína! Við urðum fljót að verða góðir vinir og þau buðu okkur heim til sín í hollenskan mat. Þetta var einskonar pysla og stappaðar kartölfur með beikon, káli, lauk oflr.
Fórum að skoða Hofburg höllina með krökkunum um daginn, mjög flott og áhugavert. Vorum með spilara í eyrunum sem sagði okkur allt á meðan við löbbuðum um og skoðuðum. Ég og Helga áttum erfitt með okkur í einu stoppinu, þegar Sissi prinsessa var drepinn og manninum hennar (Franz Josef eða eitthvað) var tilkynnt það sagði hann: "Þú veist ekki hvað ég elskaði þessa konu mikið!" Okkur fannst þetta allavegana mjög rómó :)
Ég, Dirk, Saskia, Marianne & Vincent
Svo fallegt!
Í tilefni þess að einn strákurinn átti afmæli skelltum við okkur út að borða á Fügimüller (minnir mig). Þeir eru víst með heimsins frægasta og stærsta Wiener Schnitzel í Austurríki! Það var mjög gott, fyrsta skipti sem ég smakka það.
Wiener Schnitzel
Við erum búin að vera þokkalega dugleg að halda hópin krakkarnir. Þau buðu okkur svo aftur í mat í vikunni og elduðu kjúklingapasta svo við ákváðum að bjóða þeim í mat. Þau vildu eitthvað íslenskt en okkur datt ekkert í hug (vantar líka íslensk hráefni!) var reyndar með kakósúpu pakka en Helgu leist ekki nógu vel á það haha. Enduðum á því að elda fahjitas, svona líka meiriháttar gott. Fórum með þeim þrjá daga í röð útá lífið síðustu helgi og eftir það er ég alveg komin með nóg í bili! Helga dró mig á einhvern jólamarkað á sunnudeginum þegar þynnkan mín var í hámarki, ekki vinsælt! Þarna voru allskonar matar-básar með súkkulaði, nammi, bakaríis mat, steiktum mat og ég veit ekki hvað og hvað.. Lyktin fór allavega ekki vel í mig!
Við krakkarnir
Í gærkvöldi fór ég, Helga og Marianne á Balletsýningu í Óperunni. Keyptum okkur last-minute miða og hann kostaði bara 10 evrur, fengum geggjuð sæti, mjög framalega og fyrir miðju. Gaurinn sagði að vanalega kosta þessir miðar 150 evrur!! vorum helvíti ánægðar með það ;) Eftir það fengum við okkur ís og röltum um miðbæinn, það er allt orðið svo jólalegt og flott!
Í morgun fóru Helga og krakkarnir svo til Salzburg, Kaprun í skíðaskólann. Helga átti að fara með lest þangað kl 8.20 í morgun en þá akkúrat ákvað U-bahnið okkar að hætta að virka, einhver bilun held ég. Þannig við þurftum að taka leigubíl og vorum komnar á síðustu stundu!! Hefðum við verið einni mínútu lengur á leiðinni þá hefði hún misst af henni..STRESS! En það hafðist. Hún og stelpurnar fóru saman í lestinni en strákarnir fóru á bíl. Var að tala við hana núna og henni leist mjög vel á þetta, var að kaupa sér nýtt bretti og núna voru þau að borða kvöldmat. Get ekki beðið eftir að fara þangað!!! En ég flutti svo í nýja íbúð í morgun því ég vildi ekki vera ein í þessu slummi, ekki með net, þvottavél eða neitt. Flutti inn í íbúð með 5 krökkum. Er í herbergi með einni frá svíþjóð og einni íslenskri stelpu sem er að vinna hérna, svo eru 2 strákar saman í herbergi, spænskur og ítalskur og svo er einn ítali í sér herbergi. En þetta er fínt, hér er allavegana net og þvottavél! Svo er þetta víst mjög alþjóðleg blokk þar sem það eru fullt af krökkum í skiptinámi frá öllum heimshornum. Erum að fara út að borða í kvöld svo ég vona að ég nái að kynnast þeim eitthvað :)
Er ekki með nein fun-facts um Austurríki að þessu sinni svo ég ætla bara að láta þetta duga!
ps. shout out til Kaju sys sem átti afmæli 1.nóv, pabba sem átti afmæli 18. nóv og ömmu & afa sem eiga 60 ára brúðkaupsafmæli :) Til hamingju!
Þangað til næst
neineinei ég dó þegar þið elduðuð fahitas sem íslenskan mat hahah! Allt annað hefði verið skárra haha
ReplyDeleteen ánægð með 3ja daga skrallið ykkar, þýðir samt ekkert að þykjast vera komin með nóg í bili, það er ALDREI hægt að fá nóg ;)
En vona að það verði gaman í nýju íbúðinni hjá ykkur, hljómar allavega mjög spennó! ég og gudda erum að deyja úr öfund yfir öllum nýju vinunum ykkar
vúhúú!! dugleg ertu! skelli í blogg bráðlega! Love frá Kaprun! ;)
ReplyDeletekann ekki ad skrifa nafnid mitt..kv Helga
ReplyDeleteOkey enn og aftur þarf ég að tjá mig aðeins of mikið þannig ég ætla að skipta þessu niður í liði!
ReplyDelete1. Hættu að posta myndum af súkkulaðiávöxtum!!!! Mér er skapi næst að skottast niður á næsta jólamarkað til að kaupa mér svoleiðis NÚNA!
2.Maður segir Ich komme aus Island... ekki Iceland! Til að forðast allan óþarfa miskilning, þið eruð nú einu sinni í landi þýskunnar.
3. Djöfull er þetta Schnitzel girnilegt!
4. Hvað ert þú þá að fara að gera meðan Helga er í skíðaskólanum? Áfram í þýskuskólanum eða?
5. En sú snilld að þú hafir líka farið í óperuna að sjá ballettinn eins og ég, sjúk upplifun !!
6. Sammála Heiðu.. maður tekur ekkert djammpásu þó maður djammi 3 daga í röð !!
7. Farðu svo að vera jafn dugleg að kommenta á mín blogg eins og ég á þín bitteschön :)
LIEBE GRÜSSE
Hey ég er ekki að hata þessi funfact, og já svona án djóks hættu að posta einhverjum matarmyndum og súkkulaðimyndum :D
ReplyDelete