Wednesday, November 3, 2010

Vika 2 í Austurríki

Guten Abend!

Eftir fjölda áskorana ákváðum við að skella í eitt blogg. Komumst að því að við eigum stóran fan hóp heima á klakanum.

Ekki hefur mikið drifið á daga okkar hér í Vín, erum bara að hafa það frekar notalegt. Það er ekki kominn snjór ennþá en það er verið að hengja upp jólaljós allsstaðar og spennan er farin að magnast! Eftir skóla í dag tókum við lestina yfir Dóná og keyptum okkur miða á Austurríki-Ungverjaland í íshokkí sem er á sunnudaginn, okkur hlakkar mikið til! Við röltum yfir í stórt moll þarna og Helga missti sig í barnadeildinni í H&M. Hrærekur er kominn með samfellur og náttföt fyrir allan veturinn! (Hrærekur er ófætt barn bróður Helgu, á að fæðast 11.11.10). Svo rákumst við á risastóra súkkulaðibúð, þar sem þú gast keypt allt úr súkkulaði!














Erum nú sestar á Starbucks (komnar heim) og njótum nokkra súkkulaðimola. Helga fór í skólan í dag og þá gripum við nokkrar rúllur fyrir búið, við höfum ekki ennþá þurft að fara í Supermarkað! Og þar sem við höfum ekki ennþá rekist á þvottahús hérna þá væri vel þegið að fá smá styrk frá vinum og vandamönnum fyrir fatakaupum, úr því að við erum að verða uppiskroppa.














Hér er smá fun-facts um Austurríki:
  • Allir gæjar hérna plokka á sér augabrúnirnar og við erum að tala um í boga og allt!
  • Öll pör eru yfir sig ástfangin og eru ófeimin við að sýna ástúð á almanna færi!!
  • Fólk snýtir sér óspart, þótt þau sitji alveg ofaní manni í lestinni
  • Flestar búðirnar hér taka ekki við kortum, bara peningum
  • Austurríkismenn þykja sérlega ófagurt fólk (að okkar mati)

Höfum ekki mikið annað að segja í augnablikinu en þangað til næst

Tschüss! :)

ps. öll komment eru vel þegin, valið er Post a comment, comments as Name/Url og ýta á post. Ekki flókið dæmi ;)

4 comments:

  1. Hahahahah ég man hvað það var erfitt fyrir mig að venjast því fyrstu vikuna að það eru allir ALLTAF að snýta sér!!!! Hérna í íbúðinni minni er meira að segja sér skúffa í forstofukommóðunni sem inniheldur snýtubréf!! Þið munuð venjast þessu, trúðu mér!

    ReplyDelete
  2. finnst ég knúin til að kommenta hér þar sem ég heimtaði víst blogg haha!

    Eru strákarnir samt ekkert að eltast við ykkur þarna? I want date stories

    ReplyDelete
  3. Ekkert smá gaman að sjá hvað þið eruð að gera úti!
    hlakka til að lesa meira, skemmtið ykkur endalaust vel í Vín ;)

    ReplyDelete
  4. Hæ skvísur, nú væri gott að fá sér hreinsispritt í apóteki og nota svo þið smitist ekki af einhverri kvefpest. Hafið það sem allra best, kossar og knús Móða mega

    ReplyDelete