Saturday, December 4, 2010

Síðustu 2 vikurnar í Vín

Þá er komið að því að yfirgefa Vín eftir 6 vikna dvöl. Búin að kynnast helling af skemmtilegu fólki hérna og það verður leiðinlegt að kveðja þau og þá sérstaklega vini mína á Starbucks (starfsfólkið)!

Eftir að Helga fór byrjaði ég aftur í skólanum. Með mér í tíma voru 10 krakkar frá Hollandi. Sjokkerandi að það sé svona mikið að Hollensku fólki sem vilja verða skíðakennarar, þar sem það er ekki brekku að finna í Hollandi! Helga sagði líka að það væru svona 80% af krökkunum með henni í skóla í Kaprun frá Hollandi. En við náum þokkalega saman, krakkarnir í bekknum. Þetta eru 5 stelpur og 5 strákar frá aldrinum 18-24 ára. Byrjuðum alltaf í skólanum kl 1 en fyrir hádegi var oftast farið eitthvert að skoða. Nú er ég örugglega búin að sjá flest sem hægt er að sjá hérna í Vín. Fórum meðal annars á Wien Museum, United Nation bygginguna (sem var mjööög áhugavert að skoða), Parlamentið og röltum um borgina. Eftir skóla höfum við svo farið, ég og Noor bekkjarsystir mín, á náttúrusafnið í Vín sem var sjúklega flott..Hver hefði haldið að það væri svona gaman að skoða steina! En áður en við fórum þangað kíktum við inn í Háskólann hérna í Vín og hann er klikkaður, væri ekkert á móti því að fara þangað að læra.

Á fimmtudaginn síðasta fórum við tvær í óperuna að sjá Manon Lescaut, borguðum 4 evrur og stóðum í ca 3 tíma. Núna er stelpan búin að fara að sjá ballet og óperu! Annars er ég búin að vera mjög löt á kvöldin, ekki búin að vera duglega að kíkja með krökkunum út á lífið, sem er fínt því þá eyði ég ekki pening á meðan. Í gær fórum við svo út að borða (krakkarnir í blokkinni) á stað sem heitir Sentímetri en það á sko ekki við um skammtastærðina! Ein máltíð var fyrir svona fjóra. Unnur (stelpan sem ég bý með) fékk stóra skólfu af mat og einn enskur strákur fékk heilan búgarð af kjúklingavængjum. Eftir matinn fór ég svo heim og hitti ítölsku krakkana, fór með þeim niður í bæ og fengum okkur bjór. Í dag fóru margir af krökkunum í blokkinni aftur heim en flestir voru búnir að vera hér síðan í ágúst. Ég svaf út og fór svo að rölta um bæinn í síðasta skipti (í bili), kíkti inn í allar þrjár H&M búðirnar og fór síðast en ekki síst á Starbucks og fékk mér frappó og kanilsnúð. Knúsaði svo og kyssti allt starfsfólkið bless og þakkaði fyrir mig! (Djók) Þegar ég kom heim var ítalski sambýlismaður minn að elda fyrir okkur. Hann var búinn að lofa að elda ekta ítalskt pasta í síðustu kvöldmáltíðina mína, gúrm! Núna þarf ég að halda áfram að pakka og gera allt reddí því lestin mín fer kl. 06:44 í fyrramálið og verð komin til Kaprun um hádegið.

Helga kláraði skólann í dag og er komin með skíða- og snjóbrettakennslu réttindi =D whoop whoop! Hún ætlar að gista einni nótt lengur þarna til að geta hitt mig þegar ég kem. Svo heldur hún til Hinterglemm þar sem við erum að fara að vinna. Held samt að hún sé að fara að chilla þar þangað til við byrjum að vinna 15. des en mér skilst að hún fái strax lyftupassa svo hún getur haft það gott. Ég verð í Kaprun í 10 daga en þeir verða þannig að kl 8 á morgnanna er skíðakennsla á jöklinum, klukkutíma hádegispása, aftur í fjöllin og svo eru held ég bóklegir tímar á kvöldin svo þetta verður stanslaust prógram frá 8-21. Það verða held ég svona 200 manns að gera það sama og ég svo maður ætti nú að kynnast einhverjum skemmtilegum krökkum! Það er örugglega eitthvað sem ég er að gleyma en það er allt í góðu. Ætla að fara að taka mig til núna og reyna að fara snemma að sofa. Næsta blogg verður svo um leið og tími gefst til í Kaprun ;) Enda þetta á nokkrum myndum:

Parlamentið

Jólamarkaður

Steinar á náttúrusafninu

Við krakkarnir í bekknum

Annar steinn :)

Fyrir utan United Nation húsið

Ég og Unnur

Síðasti skóladagurinn

Gatan með öllum flottu merkjunum

Skóflan sem Unnur fékk!

Krakkarnir

Martyn búinn að klára búgarðinn

Ítölsku vinir mínir, Giancarlo er strákurinn sem býr með mér


Bless í bili

No comments:

Post a Comment