Hallo Liebe Leute!
Þá erum við skvísurnar officially orðnar skíðakennarar!! whooop whooooop! Við erum voðalega ánægðar með að vera loksins sameinaðar á ný, eftir rúmlega þriggja vikna fjarveru frá hvor annari!
Við erum komnar til Hinterglemm þar sem við verðum allt seasonið. Þetta er rosalega lítill og krúttlegur bær, stutt í aðra litla bæi og maður getur skíðað á milli. Helga er búin að vera hér í 2 vikur, rosa stuð. Orðin sjúklega góð á skíðum! Þessir 10 dagar sem Helga var hér voru þau krakkarnir bara að hafa það notalegt. Þau voru öll uppgefin eftir þessa 15 daga í Kaprun og það var voðalega gott að sofa bara út og skella sér svo á skíði í 3-4 tíma og slaka á.
Tinna var ekki alveg eins heppin, hún kláraði seinustu prófin á þriðjudeginum, fékk einkanirnar og brunaði svo beint hingað og svo byrjuðum við á 3 daga námskeiði í skólanum strax morguninn eftir.
Þetta er allt voðalega strangt hérna, ekki alveg einsog við erum vanar heima. Það er búið að hóta að reka Helgu þrisvar og við erum ekki einusinni byrjaðar að vinna. Við búum á sitthvorum staðnum, Helga býr í stóru húsi með öllum hinum krökkunum, en Tinna býr í kjallaranum hjá Joseph Fritzl! Þau eru 8 krakkar sem komust ekki fyrir í húsinu og þurfa að búa í kjallara undir gistiheimili hjá einhverri gamalli konu. Það eru frekar strangar reglur þar sem við búum, við megum ekki leyfa neinum að gista, við megum ekki hafa neitt drasl í herberginu okkar, við megum ekki hafa nein læti, sama hvað klukkan er. Þetta fór eitthvað svakalega fyrir brjóstið á okkur fyrst, rosalega lítið einkalíf sem við höfum finnst okkur, en þetta lítur allt miklu betur út núna. Við kláruðum þessa þriggja daga kynningu í skólanum og við byrjum að vinna í fyrramálið. Jólafríið hjá Hollendingunum var að byrja og bærinn er orðinn stútfullur af hollendingum. Við erum by the way einu manneskjurnar hér sem erum ekki frá Hollandi fyrir utan einn Þjóðverja sem er líka að vinna með okkur. Við verðum al talandi á Hollensku eftir seasonið þar sem það er það eina sem við heyrum. Godvordomme!!
Tinna er alveg heilluð af skíðasvæðinu hérna! Hún hefur aldrei áður komið á svona stórt skíðasvæði. Þetta er rosalega fallegt svæði, mikið af trjám og þegar maður kemur á toppinn er útsýnið geðveikt! Helga tók einn dag með öllum krökkunum og þau skíðuðu á milli þriggja bæja. Tekur heilan dag og þetta var ekkert smá gaman. Rosalega flott. Næst þegar við eigum frídag ætlum við að fara í svona ferð saman.
Í dag eru 12 dagar þangað til að Rakel kemur út! Við erum svo spenntar við getum varla sofið! Það verður svaka fjör..mikið skíðað og mikið djammað!! vúhúú
Í gær skelltum við okkur á djammið! Það er Aprés Ski bar beint fyrir neðan þar sem Helga býr. Þetta er aðal djamm staðurinn hérna, voða næs að geta bara stokkið heim og farið svo aftur á barinn. Við kynntumst helling af fólki og einn eldgamall kall splæsti endalaust á okkur Íslensku vinkonurnar! Við vorum rosa hressar! Vorum komnar heim eitthvað um rúmlega 4 höldum við....erum ekki alveg vissar samt.
Í dag var svo bara slökun hjá okkur 2, því á morgun byrjar brjálæðið! Í næsta bloggi fáiði að heyra hvernig fyrsti kennsludagurinn gekk! sjiiiii
Tschüss