Sunday, November 28, 2010

Kaprun

Jaejjja! Ákvad ad henda inn smá fréttum hédan úr Kaprun!
Tetta er buid ad vera ekkert smá gaman!! Ég kom á fostudeginum fyrir rumlega viku..2 hollensku stelpurnar sem voru í Vín komu med mer hingad!  Vid maettum og tad var bara fullt hótel af brettakrokkum! Ekki leidinlegt!

Strax á laugardagsmorgninum turftum vid ad vakna 6:30 og klaeda okkur..morgunmatur kl 7, rutan fer 8 og aefingin byrjar kl 9! Ég var med skuggalega heitan brettakennara!! Sé varla sólina fyrir honum!! Hann brunadi nidur fyrstu ferdina og fór beint off pist! Ég var á splunkunýju bretti og hafdi enga stjórn..held ad ég hafi aldrei vaxad gamla brettid tannig ég var alltaf brunandi lang fremst og gat ekki stoppad! Fattadi ekki ad kantarnir á nýjum brettum eru pússadir nidur tannig eg var algjorlega stjornlaus, en ákvad samt ad bida tangad til a midvikudaginn med ad brýna kantana! Brettakennarinn fékk sjokk...alltíeinu gat ég svigad edlilega og bremsad tegar eg turfti! Algjor lúxus!

Á mánudeginum byrjudum vid strax ad laera ad stokkva og fara á svona box...Ég lenti 180 strax...voda sátt!! og svo turftum vid ad laera allskonar trix..gekk voda vel...
Á tridjudeginum var svo Freestyle keppni...Voda gaman..nema brettakennarinn minn gleymdi sér og vid maettum alltof seint og vid gátum ekki keppt, en um kvoldid var svo haldin svona verdlaunaafhending og smá lokahóf aftvi prófin byrjudu á midvikudaginn! Allir hóparnir turftu ad gera eitthvad og minn hopur turfti ad sjá um atburdinn! Ég var látin vera kynnir...svo vorum vid med allskonar uppákomur og dót..rosa fjor! Vid hofdum bara 15 min til ad undirbúa allt tannig eg gat ekki skipt um fot eda neitt..tannig eg var klaedd einsog svertingi í huge jogging galla!  (ekki margin sem hafa séd mig valsandi um i huge jogging galla ) Ég turfti ad vera uppá svidi klaedd einsog fifl tannig krakkarnir monudu mig til ad tala einsog svertingi...mér fannst tad soldid ótaeginlegt en ég skaut inní nokkrum ,,Homeboy"og ,,Chillin wit my peeps!" Seinna um kvoldid forum vid svo a bar og brettakennararnir allir med! sjúklega gaman nema brettakennarinn minn splaesti nokkrum drykkjum og ég endadi freeekar vel í tvi! aefingin daginn eftir var ekki eins skemtinleg! Allir ad deyja!
Svo voru próf á midvikudag, fimtudag og fostudag! Gekk ágaetlega í ollu nema skriflega tyskuprófinu...doldid erfitt!

Svo fórum vid oll ut a fostudags kv0ldid ad halda uppa proflokin...vid stelpurnar voru svo voda fyndnar tegar vid komum heim...eg og 3 adrar vinkonur minar ákvádum ad tad vaeri voda fyndid ad stela klósett rúllonum úr ollum herberjonum! Vid fundum Huge plontur sem er buid ad pleisa hérna útum allt, voda lekkert, og settum tau inná klósettin tegar vid tókum pappírinn...nema ég var ad bera risa stór tré og dattt og tad brotnadi og tad var mold útum allt! Vid vorum ekkert ad stressa okkur yfir tví..héldum bara áfram ad taema klósettin og voktum nokkra gaejja í leidinni...oskrudum FIRE og allir ruku frammúr kl 4 um nóttina! Allaveganna tá vorum vid ekki taer allra vinsaelustu um morguninn og vid vorum ad deyja úr stressi allan daginn á aefingu, tannig tegar vid komum heim fórum vid í móttokuna og bádumst afsokunnar og sogdumst aetla ad borga tettta...eigandinn vissi ekki einusinni af tessu en sagdi okkur ad gera tetta bara ekki aftur! Svo lobbudum vid i olll herbergin og bádum krakkana afsokunnar...allir voru voda gladir med tad! Einn strákurinn bara ,,Já, ég vaknadi drullu tunnur og turfti ad fara á klósettid, tá var bara eitthvad tré á klósettinu og enginn klósett pappír!"doldid fyndid eftirá en vid gátum ekki hlegid fyrren daginn eftir...vid vorum svo hraeddar!

Svo á laugardeginum byrjadi fyrsta skída aefingin...eg er ekki búin ad hafa neinn tíma tannig ég var ekki búin  vaxa skídin eda brýna kantana. Ég er eina pían hér sem er ekki á nýjum carving skídum og allir eru ad spurja..hvar fást svona skidi...tau eru ekki seld í búdonum hér! Mér fynnst tetta eiginlega bara fyndid en einsog er er ég allaveganna lélegust! En ég fór med skídin min i skerpingu og vax og fae tau i fyrramálid og vonandi gengur betur! Tetta eru eeld gomul skídi sem hafa ekki verid notud i svona 10 ár..tau eru smá ridgud en tad fer af í skerpingunni...skídakennarinn minn sagdi ad ég tyrfti ekki ný en ég tyrfti naudsynlega ad fara med tau í Service! Vonandi gengur betur á morgun!

Vid aetlum ad hafa tad bara kósý í kvold..horfa á mynd og fara snemma ad sofa! Vorum sofnadar kl 9 í gaerkvoldi..madur er algjorlega búinn á tví hérna! Erum stanslaust ad frá 6:30 til 20:00 á kvoldin..tad eru 2 bóklegir tímar eftir ad vid komum heim úr fjallinu...hofum pásu kl 6 og bordum kvoldmat. Ég er ad fýlada í botn ad hafa svona aktífann dag...manni leidist aldrei!
Talvan mín er ónýt tannig ég veit ekki hvenar ég blogga naest..en ég reyni ad henda inn fréttum eins fljótt og haegt er!

Peace out! Alexía

Friday, November 19, 2010

Mánuður liðinn..

Vá hvað þessi mánuður er búinn að líða hratt!

Strax annan daginn í þýsku-skíða skólanum vorum við farnar að skilja aðeins betur. Vorum með 4 hollenskum krökkum í tíma, 2 stelpur og 2 strákar. Fyrst héldum við að þau hötuðu okkur (útaf Icesave) en svo þegar við kynntumst þeim kom í ljós að þau héldu að við værum frá Eistlandi!! Þannig er mál með vexti að þegar við segjum Iceland, þá heyrir fólk Eistland.. En það var allt saman gott og blessað, eftir margar umræður um Icesave voru þau sammála okkur um að þetta sé algjört bull og ein skammaðist sín fyrir þjóðina sína! Við urðum fljót að verða góðir vinir og þau buðu okkur heim til sín í hollenskan mat. Þetta var einskonar pysla og stappaðar kartölfur með beikon, káli, lauk oflr.




Fórum að skoða Hofburg höllina með krökkunum um daginn, mjög flott og áhugavert. Vorum með spilara í eyrunum sem sagði okkur allt á meðan við löbbuðum um og skoðuðum. Ég og Helga áttum erfitt með okkur í einu stoppinu, þegar Sissi prinsessa var drepinn og manninum hennar (Franz Josef eða eitthvað) var tilkynnt það sagði hann: "Þú veist ekki hvað ég elskaði þessa konu mikið!" Okkur fannst þetta allavegana mjög rómó :)

Ég, Dirk, Saskia, Marianne & Vincent

Svo fallegt!


Í tilefni þess að einn strákurinn átti afmæli skelltum við okkur út að borða á Fügimüller (minnir mig). Þeir eru víst með heimsins frægasta og stærsta Wiener Schnitzel í Austurríki! Það var mjög gott, fyrsta skipti sem ég smakka það.


Wiener Schnitzel

Við erum búin að vera þokkalega dugleg að halda hópin krakkarnir. Þau buðu okkur svo aftur í mat í vikunni og elduðu kjúklingapasta svo við ákváðum að bjóða þeim í mat. Þau vildu eitthvað íslenskt en okkur datt ekkert í hug (vantar líka íslensk hráefni!) var reyndar með kakósúpu pakka en Helgu leist ekki nógu vel á það haha. Enduðum á því að elda fahjitas, svona líka meiriháttar gott. Fórum með þeim þrjá daga í röð útá lífið síðustu helgi og eftir það er ég alveg komin með nóg í bili! Helga dró mig á einhvern jólamarkað á sunnudeginum þegar þynnkan mín var í hámarki, ekki vinsælt! Þarna voru allskonar matar-básar með súkkulaði, nammi, bakaríis mat, steiktum mat og ég veit ekki hvað og hvað.. Lyktin fór allavega ekki vel í mig!






Við krakkarnir

Í gærkvöldi fór ég, Helga og Marianne á Balletsýningu í Óperunni. Keyptum okkur last-minute miða og hann kostaði bara 10 evrur, fengum geggjuð sæti, mjög framalega og fyrir miðju. Gaurinn sagði að vanalega kosta þessir miðar 150 evrur!! vorum helvíti ánægðar með það ;) Eftir það fengum við okkur ís og röltum um miðbæinn, það er allt orðið svo jólalegt og flott!

Í morgun fóru Helga og krakkarnir svo til Salzburg, Kaprun í skíðaskólann. Helga átti að fara með lest þangað kl 8.20 í morgun en þá akkúrat ákvað U-bahnið okkar að hætta að virka, einhver bilun held ég. Þannig við þurftum að taka leigubíl og vorum komnar á síðustu stundu!! Hefðum við verið einni mínútu lengur á leiðinni þá hefði hún misst af henni..STRESS! En það hafðist. Hún og stelpurnar fóru saman í lestinni en strákarnir fóru á bíl. Var að tala við hana núna og henni leist mjög vel á þetta, var að kaupa sér nýtt bretti og núna voru þau að borða kvöldmat. Get ekki beðið eftir að fara þangað!!! En ég flutti svo í nýja íbúð í morgun því ég vildi ekki vera ein í þessu slummi, ekki með net, þvottavél eða neitt. Flutti inn í íbúð með 5 krökkum. Er í herbergi með einni frá svíþjóð og einni íslenskri stelpu sem er að vinna hérna, svo eru 2 strákar saman í herbergi, spænskur og ítalskur og svo er einn ítali í sér herbergi. En þetta er fínt, hér er allavegana net og þvottavél! Svo er þetta víst mjög alþjóðleg blokk þar sem það eru fullt af krökkum í skiptinámi frá öllum heimshornum. Erum að fara út að borða í kvöld svo ég vona að ég nái að kynnast þeim eitthvað :)

Er ekki með nein fun-facts um Austurríki að þessu sinni svo ég ætla bara að láta þetta duga!

ps. shout out til Kaju sys sem átti afmæli 1.nóv, pabba sem átti afmæli 18. nóv og ömmu & afa sem eiga 60 ára brúðkaupsafmæli :) Til hamingju!

Þangað til næst

Monday, November 8, 2010

Spennandi tímar! whoop whoop

Jææjja,

Okkur skvísunum fannst kominn tími á annað blogg. Mikið búið að vera í gangi hjá okkur undanfarna daga.
Seinasta föstudag þá kláraði Helga námskeiðið í Actilingua tungumálaskólanum. Um kvöldið ákváðum við að skella okkur á bjórkvöld sem FÍA (Félag Íslendinga í Austurríki) stóð fyrir. Þar hittum við helling af íslenskum krökkum sem hafa verið búsett hér mislengi. Við fórum svo öll saman á Karokí-Bar þar sem Helga steig á svið og rappaði lagið Empire State og Mind með Agnesi, annari Íslenskri stelpu sem við kynntumst hér. Þær voru svaka flottar! ;) 

Slógu í gegn

Á laugardeginum vöknuðum við og ákváðum að fara að skoða Schönbrunn höllina hérna í Vín. Tinna er búin að vera rosa spennt að fara að skoða hana síðan við komum út. Hallargarðurinn var rosalega stór og við eyddum mest-öllum deginum þarna. Veðrið var rosa gott og við tókum helling af myndum! Þegar við komum heim seinnipartinn elduðum við fyrstu máltíðina og vorum svo uppgefnar eftir það að við ákváðum að vera bara heima um kvöldið að horfa á mynd og hafa það kósý!

Schönbrunn höllin

Úr garðinum

Smá haustfagnaður

Við vöknuðum við sms kl rúmlega 4 um nóttina frá Sandra bróðir Helgu, litli prinsinn var fæddur og við urðum alveg óðar og gátum ekki sofnað aftur. Skelltum okkur snemma á fætur og fórum á starbucks að bíða eftir myndum af honum!

Flottir feðgar

Litli prinsinn

Á sunnudagskvöldinu skelltum við okkur á Hokkí-leikinn! Það var rosaleg stemmning þarna, og Tinna var alveg í sjokki yfir æsingnum! Við skildum eiginlega ekki neitt í reglunum en vorum samt komnar vel inn í æsinginn í lokinn. Allir áhorfendurnir urðu brjálaðir og köstuðu dóti inná ísinn og hræktu á dómarann! En við unnum og þá vorum allir voða glaðir.
Við sáum líka að við þurfum greinilega að fara að hanga meira í skautahöllinni, allir sætu strákarnir sem við erum búnar að gera dauðaleit að voru þarna í höllinni.

Með miðann á leikinn



Félagar okkar í Vienna Capitals

Í dag byrjuðum við svo í skíða-tungumála náminu. Við fengum að vera saman í þessum tímum og við urðum fyrir vægu áfalli þegar tíminn byrjaði! Þetta var einhver Advanced-cource og við skildum ekki stakt orð allan tímann! Konan bara babblaði og babblaði á þýsku og við náðum kanski 4 orðum úr allri kennslustundinni! Þetta var orðaforði sem við höfum hvorki heyrt né lært áður, um halla og gráður á skíðabrekkum og innri brúnir svigskíða, og konan var ekkert að glósa eða útskýra bara blaðraði í 3 klst stanslaust. Við vorum alveg búnar á því eftir tímann!
Gleði tíðindi dagsins voru hins vegar að við fundum SUBWAY! Svakaleg hamingja sem fylgdi því...orðnar svolítið þreyttar á Kebab og McDonalds.
Erum alveg að gefast upp á rúminu okkar. Við getum vart gengið þessa dagana, erum orðnar svo slæmar í bakinu á að sofa á þessum brakandi, ójafna bedda! Vindsængin okkar í eyjum var betri en þetta....og hún var loftlaus! Svo höfum við ekki áttað okkur á þessu með þvottahúsið sem er staðsett í næsta bæjarfélagi og við höfum engan stað til að hengja upp...þurfum að taka lest og 2 strætóa til að komast þangað með allan þvottinn, og svo blautan til baka.

En alltaf er eitthvað uppi þegar annað er niðri, segja spekingarnir! (raddirnar inní hausnum á Helgu)

Ætlum að enda þetta blogg okkar á smá Fun-Facts um Austurríki;

  • Fullorðið fólk hér ferðast um á hlaupahjólum. Við verðum alltaf jafn hissa við að sjá þetta!
  • Tískan hérna er aðeins eftirá, en konurnar hér ganga flestar um í húðlituðum sokkabuxum (okkur finnst þetta ekki henta ungum skvísum)
  • Hundar eru leyfðir allsstaðar! Hvort sem það er inná Starbucks, H&M eða í matvöruverslunum
  • Fólk fær sér göt á ótrúlegustu staði í andlitinu. Höfum meira að segja séð Guttormshring í tannholdinu á einni dömu. Þetta er eitthvað svakalegt trend hérna, því annarhver maður er með lokk. 

Bis später!!

Helga Alexía und Hafdís Tinna


Wednesday, November 3, 2010

Vika 2 í Austurríki

Guten Abend!

Eftir fjölda áskorana ákváðum við að skella í eitt blogg. Komumst að því að við eigum stóran fan hóp heima á klakanum.

Ekki hefur mikið drifið á daga okkar hér í Vín, erum bara að hafa það frekar notalegt. Það er ekki kominn snjór ennþá en það er verið að hengja upp jólaljós allsstaðar og spennan er farin að magnast! Eftir skóla í dag tókum við lestina yfir Dóná og keyptum okkur miða á Austurríki-Ungverjaland í íshokkí sem er á sunnudaginn, okkur hlakkar mikið til! Við röltum yfir í stórt moll þarna og Helga missti sig í barnadeildinni í H&M. Hrærekur er kominn með samfellur og náttföt fyrir allan veturinn! (Hrærekur er ófætt barn bróður Helgu, á að fæðast 11.11.10). Svo rákumst við á risastóra súkkulaðibúð, þar sem þú gast keypt allt úr súkkulaði!














Erum nú sestar á Starbucks (komnar heim) og njótum nokkra súkkulaðimola. Helga fór í skólan í dag og þá gripum við nokkrar rúllur fyrir búið, við höfum ekki ennþá þurft að fara í Supermarkað! Og þar sem við höfum ekki ennþá rekist á þvottahús hérna þá væri vel þegið að fá smá styrk frá vinum og vandamönnum fyrir fatakaupum, úr því að við erum að verða uppiskroppa.














Hér er smá fun-facts um Austurríki:
  • Allir gæjar hérna plokka á sér augabrúnirnar og við erum að tala um í boga og allt!
  • Öll pör eru yfir sig ástfangin og eru ófeimin við að sýna ástúð á almanna færi!!
  • Fólk snýtir sér óspart, þótt þau sitji alveg ofaní manni í lestinni
  • Flestar búðirnar hér taka ekki við kortum, bara peningum
  • Austurríkismenn þykja sérlega ófagurt fólk (að okkar mati)

Höfum ekki mikið annað að segja í augnablikinu en þangað til næst

Tschüss! :)

ps. öll komment eru vel þegin, valið er Post a comment, comments as Name/Url og ýta á post. Ekki flókið dæmi ;)