Nú erum við (Tinna) loksins búnar að setja upp þokkalega bloggsíðu, kunnum samt ekkert rosalega mikið á þetta þó svo að við höfum verið afbragðs bloggarar í gamla daga! En við höfum frá mörgu að segja héðan frá Austurríki..
Á þriðjudeginum var þjóðhátíðardagur Austurríkis og var því frí í skólanum svo við stöllurnar fórum bara niður í bæ og röltum um. Römbluðum inná einhverja hermannasýningu sem var mjög flott en frekar spes, þar sem við erum ekki vanar að sjá svona. Hermennirnir voru búnir að stilla upp öllum tækjunum sínum; byssum, þyrlum, skriðdrekum, þotum og bara nefndu það. Svo máttu allir bara prófa! Frekar óhugnalegt að sjá litla krakka halda á byssum og miða á mann og annan! En þarna voru ekki bara hermenn með tólin sín heldur fundum við bása með alls kyns kræsingum og auðvitað urðum við að smakka! Brezen, jarðaber með súkkulaði og síðast en alls ekki síst KEBAB :)
Ég með bazooku
Annars erum við búnar að vera rosa miklir túristar, röltandi útum allt með myndavélar og kort. Förum út á morgnanna og komum ekki heim fyrr en á kvöldin. Búum svo langt frá miðbænum og það er ekkert net í íbúðinni þannig við erum eins lítið heima og við komumst upp með. Ég byrja ekki í skólanum fyrr en 8. nóv en þangað til mæti ég með Helgu í skólann og er bara að chilla í tölvunni minni þangar til hún er búin (er frá 14:15-17:30 í tíma), því hér komumst við á netið. Eftir skóla förum við vanalega bara niðrí miðbæ og fáum okkur að borða, kíkjum í búðir og endum svo á Starbucks þangað til við förum heim. Get ekki sagt að ég hati þetta líf :) Vín er líka svo rosalega falleg borg að við erum alveg að missa okkur.
Í kvöld erum við að fara í vín-/bjórsmökkun með skólanum og á morgun er einhver ferð og fræðsla um modern arkitektur. Æltum svo að reyna að fara á leikinn Austurríki-Ísland annað kvöld. En ég ætla að láta þetta nægja í bili!
Auf wiedersehen!! ("Y")